Fallvarnir
Verð fyrir félagsmenn
7.000 kr.
Verð
28.000 kr.
Námskeið fyrir alla sem starfa við mannvirkjagerð um fallvarnir og varúðarráðstafanir við vinnu í hæð.
Fyrir hvern:
Námskeiðið er ætlað fólki sem starfar í bygginga- og mannvirkjagerð og við aðrar aðstæður þar sem unnið er í hæð.
Markmið:
Markmið þess er að auka þekkingu þátttakenda á hættum við vinnu í hæð og kenna þeim að nota réttan fallvarnarbúnað. Þannig verði stuðlað að fækkun óhappa og vinnuslysa.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Vinnu í hæð og tekin dæmi um hættulegar aðstæður.
- Notkun á viðeigandi fallvarnarbúnaði og aðrar forvarnir til að verjast fallslysum.
- Viðbragðsáætlanir til að tryggja öryggi starfsmanna.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja hættulegar aðstæður við vinnu á framkvæmdasvæðum.
- Geta valið og notað viðeigandi fallvarnarbúnað.
- Kunna að gera viðbragðsáætlun til tryggingar á öryggi.
Annað:
Námskeiðið er haldið í samvinnu við Dynjanda ehf. Þátttakendum stendur til boða að prófa nýjustu gerðir fallvarnarbúnaðar.
Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík
15. október 2026 kl: 09:00 - 12:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám með möguleika á fjarnámi
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
100% Mæting
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Kennari
Gísli Bergmann
Sérfræðingur í öryggisbúnaði
Gísli hefur sótt fjöld námskeiða og hlotið réttindi sem leiðbeinandi um notkun og meðferð öryggisbúnaðar. Hann starfar við sölu og ráðgjöf hjá Dynjanda.