Hljóðvist í húsum
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Þetta er námskeið fyrir fagfólk í byggingariðnaði sem starfar við frágang veggja, lofta, gólfa og annarra byggingarhluta.
Markmið:
Markmið þess er að kenna þátttakendum réttan frágang og grundvallaratriði varðandi hljóðvist.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Hljóðeinangrun.
- Hljóðhöggeinangrun.
- Hljóðísog.
- Ómtíma.
- Önnur atriði sem snerta hljóðvist.
- Frágang og notkun mismunandi byggingarefna sem henta hverju tilfelli fyrir sig.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Kunna skil á helstu hugtökum hljóðvistar.
- Þekkja efni og aðferðir til að bæta hljóðvist í húsum.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Steindór er hljóðverkfræðingur og byggingarverkfræðingur og hefur starfað sem sérfræðingur við hönnun og ráðgjöf í ýmiss konar hljóðvistarverkefnum á verkfræðistofum. Hann starfaði þar áður við rannsóknir og ráðgjöf í hljóðvistarverkefnum á Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins.