Raki og mygla í húsum 3
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Þetta námskeið er fyrir aðila sem koma að nýbyggingum eða viðhaldi mannvirkja og hafa lokið námskeiðum Raki og mygla I og II.
Markmið:
Markmiðið námskeiðsins að þátttakendur afli sér þekkingar til þess að fyrirbyggja eða lágmarka áhættu á rakaskemmdum við hönnun og framkvæmd bygginga.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Rakaöryggi við hönnun bygginga og framkvæmdir bið byggingu þeirra.
- Hvað ber að varast og hvað gefist hefur vel við byggingaframkvæmdir.
- Deilihönnun bygginga, rakaflæði í byggingarhlutum, efnisval og vinnubrögð.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja helstu orsakir þess að raki safnast upp í byggingum.
- Þekkja rakaflæði í byggingarhlutum.
- Þekkja aðferðir til að tryggja rakaöryggi við byggingaframkvæmdir.
Annað:
Þetta er þriðja námskeiðið í röð námskeiða um raka og myglu í húsum.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Gústaf er húsasmiður, byggingafræðingur og með mastersgráðu í byggingaeðlisfræði. Hann hefur fjölbreytta reynslu og breiðan bakgrunn úr byggingariðnaði, m.a. verið verktaki í nýsmíði og viðhaldsmálum, hönnuður, rekstrarstjóri stórra bygginga og í verkfræðilegri ráðgjöf.