Krosslímdar timbureiningar
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Þetta námskeið er fyrir þau sem vinna við meðferð og uppsetningu á húsum úr krosslímdum timbureiningum (CLT).
Markmið:
Markmið með námskeiðinu er að fræða þátttakendur um gerð, eiginleika og meðferð CLT eininga við byggingaframkvæmdir.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Gerð og tegundir CLT timbureininga.
- Helstu eiginleika þeirra og notkunarsvið.
- Rakaástand eininga á uppsetningartíma og varnir á viðkvæmum stöðum í samsetningum.
- Raka í timbri, útþornun, mælingaaðferðir og geymslu á byggingarstað.
- Sérstöðu Íslands veðurfræðilega séð og áskoranir henni tengdar.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja helstu tegundir CLT timbureininga og eiginleika þeirra.
- Vita hvernig verja skal krosslímdar timbureiningar á byggingastað og við uppsetningu.
- Þekkja til séríslenskra aðstæðna varðandi veðurfar og raka.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Gústaf er húsasmiður, byggingafræðingur og með mastersgráðu í byggingaeðlisfræði. Hann hefur fjölbreytta reynslu og breiðan bakgrunn úr byggingariðnaði, m.a. verið verktaki í nýsmíði og viðhaldsmálum, hönnuður, rekstrarstjóri stórra bygginga og í verkfræðilegri ráðgjöf.