Brunaöryggi við byggingaframkvæmdir
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Þetta námskeið er fyrir alla sem standa í byggingaframkvæmdum og vilja tryggja að koma í veg fyrir eldsvoða við þær.
Markmið:
Markmið þess er að fara yfir það sem skiptir mestu máli þegar kemur að brunavörnum bygginga á framkvæmdatímanum.
Á námskeiðin verður fjallað um:
- Hönnunargögn brunavarna, hvaða gögn þurfa að liggja fyrir.
- Deilihönnun á brunavörnum, gögn og frágangur.
- Ábyrgð verktaka á brunavörnum á framkvæmdatíma
- Hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að lokaúttekt
- Ábyrgð mismunandi aðila á mismunandi þáttum
- Þjónustusamningar og þjónustuaðilar
- Brunavarnir í öryggis- og heilbrigðisáætlun framkvæmda.
- Brunaþéttingar á framkvæmdatíma.
- Rýmingaráætlanir og flóttaleiðir á framkvæmdatíma.
- Aðkoma slökkviliðs á framkvæmdatíma
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja ábyrgð sína á brunavörnum við framkvæmdir.
- Kunna að standa að nauðsynlegum brunavörnum á framkvæmdatíma.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Atli Rútur er bygginga- og brunaverkfræðingur með B.Sc. gráðu í Umhverfis- og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í Burðarþols- og brunaverkfræði frá Edinborgarháskóla í Skotlandi. Hann er löggiltur mannvirkjahönnuður og starfar við brunahönnun bygginga, úttektir brunavarna, brunaáhættumöt, rannsóknir á brunatjóni o.fl. Atli sat fyrir hönd Brunatæknifélags Íslands í vinnuhópi Húsnæðis og mannvirkjastofnunar sem sá um gerð RB blaðs um lagningu þakpappa.