Öryggis- og lokaúttekt - skil á gögnum til byggingaryfirvalda
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Þetta námskeið er fyrir alla sem þurfa að skila gögnum til byggingarfulltrúa vegna öryggis- og lokaúttektar á byggingum.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum skýra innsýn í öryggis- og lokaúttektir samkvæmt gildandi byggingarreglugerð og auðvelda þeim þannig skil á gögnum.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Helstu reglugerðarkröfur.
- Framkvæmd skoðana.
- Ábyrgð aðila.
- Skráningu gagna.
- Hvernig tryggja á að mannvirki uppfylli allar kröfur áður en lokaúttekt fer fram.
- Ferli öryggis- og lokaúttekta og hlutverk og ábyrgð byggingarstjóra, iðnmeistara, verktaka, byggingarfulltrúa og slökkviliðs.
- Raunveruleg dæmi og til að tryggja hagnýta nálgun sem nýtist í daglegu starfi.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja lög og reglur um öryggis- og lokaúttektir og framkvæmd þeirra.
- Geta gengið frá gögnum á fullnægjandi hátt fyrir öryggis- og lokaúttekt.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Eyjólfur er byggingatæknifræðingur frá Noregi. Hann hefur starfað sem öryggis- og gæðastjóri, ráðgjafi og bæjartæknifræðingur.