Ferli byggingarframkvæmdar frá upphafi til enda

Staðsetning
Hús Fagfélaganna-Herðubreið, Stórhöfði 29, 110 Reykjavík
23. september 2026 kl: 13:00 - 18:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Verð 35.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 7.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Ferli byggingarframkvæmdar frá upphafi til enda
Námskeið fyrir iðnaðarmenn, byggingarstjóra og aðra stjórnendur í byggingaframkvæmdum sem vilja þekkja ferli byggingarframkvæmdar frá upphafi til enda.

Fyrir hverja:

Þetta námskeið fyrir iðnaðarmenn og aðra stjórnendur í byggingaframkvæmdum sem vilja þekkja ferli byggingarframkvæmdar frá upphafi til enda.

Markmið:

Markmið með námskeiðinu er að upplýsa þátttakendur um hlutverk og skyldur iðnmeistara og byggingarstjóra við byggingarleyfiskyldar framkvæmdir og leiðbeina þeim í gegnum þær.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Hlutverk einstakra aðila sem koma að framkvæmdum
  • Umfangsflokkun mannvirkja
  • Hvaða kröfur eru gerðar til byggingarstjóra í framkvæmdum á mismunandi umfangsflokkun
  • Kröfur til iðnmeistara í framkvæmdum á mismunandi umfangsflokkun
  • Byggingarleyfi og byggingarheimildir
  • Eigin úttektir
  • Áfangaúttektir byggingarstjóra
  • Kröfur um brunaþéttingar
  • Samskiptasamninga
  • Yfirlýsingar iðnmeistara í lok verks
  • Þjónustusamninga í lok verks
  • Öryggis og lokaúttektir

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja ferli við byggingaframkvæmdir frá upphafi til loka
  • Vita hverjar skyldur allra sem koma að mannvirkjagerð eru
  • Geta gert samskiptasamninga við iðnmeistara
  • Geta gert þjónustusamninga við þjónustuaðila
  • Geta gert áhættugreiningar og nýtt þær við framkvæmdir
  • Geta sett upp öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir framkvæmdir

Aðrar upplýsingar:

Þátttakendur taki með sér tölvur til notkunar í stuttum verklegum æfingum.

Hlutverk byggingarstjóra og iðnmeistara eru viðmikil í byggingarleyfisskyldum framkvæmdum. Námskeiðið er hugsað til þess að þeir sem taka að sér þessi hlutverk séu betur að sér einstökum þáttum þess og séu því upplýstari um hvert það er og hvaða ábyrgð fylgir þeim.

Verð 35.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 7.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Staðsetning
Hús Fagfélaganna-Herðubreið, Stórhöfði 29, 110 Reykjavík
23. september 2026 kl: 13:00 - 18:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Eyjólfur Bjarnason
Kennari
Eyjólfur Bjarnason
Byggingatæknifræðingur

Eyjólfur er byggingatæknifræðingur frá Noregi. Hann hefur starfað sem öryggis- og gæðastjóri, ráðgjafi og bæjartæknifræðingur.