Þetta námskeið er ætlað pípulagningamönnum með full réttindi sem ætla sér að annast þjónustu og eftirlit með vatnsúðakerfum.
Tilgangur námskeiðsins er að fræða þátttakendur um gerð og virkni vatnsúðakerfa og hlutverk og ábyrgði þjónustu og eftirlitsaðila.
Námskeiðið er haldið í samræmi við 14. gr reglugarðar um þjónustuaðila brunavarna og lýkur með prófi. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sem gefur út leyfi til þeirra sem ljúka prófi með fullnægjandi árangri. Öllum er frjáls þátttaka á námskeiðnu en einungis löggiltir pípulagningameistarar öðlast réttindi til að hafa eftirlit með slökkvikerfum
Guðmundur er MSc í byggingarverkfræði frá Aalborg Universitetcenter og MPA í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Hann er löggiltur hönnuður aðaluppdrátta, lagna og burðarþols. Guðmundur hefur áratuga reynslu af að skipuleggja og kenna eldvarnaeftirlitsmönnum að skoða hús eftir forskrifuðum reglum. Hann er stundakennari við Háskólann í Reykjavík og kennir við endurmenntun fag- og iðnaðarmanna hjá Iðunni, Rafiðnaðarskólanum og á námskeiðum í samstarfi við Vinnueftirlitið.
Egill er pípulagningarmeistari og hefur unnið við vatnsúðaslökkvikerfi allt frá árinu 1984. Hann hefur flutt inn efni og búnað fyrir sprinklerlagnir. Hann hefur um árabil starfað við eftirlit , úttektir og ráðgjöf á sprinklerkerfum.