Svansvottaðar byggingar

Verð fyrir félagsmenn
1.000 kr.
Verð
5.000 kr.
Svansvottaðar byggingar
Námskeið fyrir þau sem eru eða ætla að byggja svansvottaðar byggingar.

Fyrir hverja:

Þetta námskeið er fyrir iðnmeistara, byggingarstjóra og aðra sem ætla að byggja eða gerast ábyrgðarmenn Svansvottaðra bygginga.

Markmið:

Tilgangur þess er að fræða þátttakendur um ferlið og hvað þarf að gera til þess að fá nýbyggingu Svansvottaða.

Meginmarkmiðið er að nemendur öðlist þekkingu á áherslum Svansins og þeim kröfum sem settar eru til að draga úr umhverfisáhrifum byggingarframkvæmda, sporna við hnattrænni hlýnun og vernda heilsu þeirra seirra sem koma að verkinu á framkvæmdartíma sem og íbúa byggingarinnar á notkunartíma.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Hugmyndafræði Svansins og helstu áherslur.
  • Afhverju vottunarferlið skiptir máli.
  • Skyldukröfur, valkröfur, efnisskráningar, utanumhald gagna, úttektir og fleira.
  • Hvernig staðið er að Svansvottaðri framkvæmd.
  • Hlutverk mismunandi aðila sem koma að verkefninu.
  • Viðmiðaskjalið og hvernig eigi að nota það.
  • Hvaða gögnum þarf að skila inn hvenær.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja hugmyndafræði Svansins.
  • Þekkja kröfur sem gerðar eru til Svansvottaðra nýbygginga.
  • Vita hver er ábyrgð framkvæmdaraðila.
  • Kunna skil á byggingarferli Svansvottaðra nýbygginga.
  • Vita hvaða gögn þurfa að liggja fyrir og hvernig eigi að skila þeim af sér.

Annað:

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Svaninn á Íslandi.

Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík

14. október 2026 kl: 09:00 - 12:00
Setja í dagatal
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Kennarar
Bergþóra Góa Kvaran
Bergþóra Góa Kvaran
Sérfræðingur

Bergþóra er arkitekt og sérfræðingur í Svansvottuðum byggingum hjá Umhverfis- og orkustofnun

G. Lilja Kristinsdóttir
G. Lilja Kristinsdóttir
Framkvæmdarstjóri Svansins á Íslandi

Guðrún Lilja er með mastersgráðu í Umhverfis- og auðlindafræði frá Háskóla Íslands og hefur unnið við Svansvottanir í rúman áratug og hefur einnig komið að fræðslu varðandi grænan lífstíl og valdeflingu neytenda.