Tilboðsgerð verktaka

Verð fyrir félagsmenn
12.000 kr.
Verð
60.000 kr.
Tilboðsgerð verktaka
Námskeið fyrir iðnmeistara og minni verktaka sem ætla að gera tilboð í verkefni og verkhluta.

Fyrir hverja:

Þetta námskeið er fyrir iðnmeistara og minni verktaka sem ætla að gera tilboð í verkefni og verkhluta.

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Lög og reglur um útboð.
  • Magntölur og magntöku einstakra verkþátta.
  • Einingaverð og útreikning þeirra.
  • Tilboðsskrár og tilboðsgerð.
  • Skil á tilboðum.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja helstu ákvæði laga og reglna um útboð.
  • Kunna að magntaka og setja fram magntölur
  • Reikna einingaverð.
  • Kunna að fylla út tilboðsskrá og tilboðsblað og skila til verkkaupa.

Annað:

Á námskeiðinu eru unnin nokkur verkefni úr hverjum þætti þess. Þátttakendur þurfa að hafa með sér tölvu.

Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík

2. október 2026 kl: 13:00 - 18:00
3. október 2026 kl: 09:00 - 16:00
Setja í dagatal
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Elías Bjarnason
Kennari
Elías Bjarnason
byggingaverkfræðingur

Elias er byggingarverkfræðingur með meistaragráðu í framkvæmdastjórnun. Hann hefur starfað sem verkefnastjóri og ráðgjafi hjá opinberum stofnunum og einkafyrirtækjum bæði á Íslandi og í Noregi, auk þess að kenna og leiðbeina um útboð, samninga og rakavarnir í byggingum.