Raunkostnaður útseldrar þjónustu

Staðsetning
Húsnæði Öryggisskólans, Stórhöfða 27, 110 Reykjavík
21. október 2026 kl: 13:00 - 19:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Sylvía Björk Ólafsdóttir - [email protected]
Verð 45.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 9.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Raunkostnaður útseldrar þjónustu
Námskeið fyrir iðnmeistara og verktaka sem selja út efni, vinnu og tæki.

Fyrir hverja:

Þetta námskeið er fyrir iðnmeistara og verktaka sem selja út efni, vinnu og tæki.

Markmið:

Markmið þess er að kenna þátttakendum útreikning á nauðsynlegri álagningu á tilboðs- og tímavinnu.

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Notkun forritsins TAXTA IV.
  • Álagningu inni í útseldri vinnu, vélum og tækjum.
  • Hvort borgi sig að bæta við starfsfólki í stað eftirvinnu.
  • Hversu mikla fjárfestingu reksturinn ber.
  • Hvað þarf að rukka fyrir tæki eins og háþrýstidælu, borðsög, gröfu, körfubíl, vinnupalla, ekinn kílómetra o.s.frv.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Geta unnið með forritið taxta sér til gagns.
  • Þekkja eigin kostnað í rekstri.
  • Geta verðlagt efni, vinnu og tæki þannig að reksturinn skili arði.

Annað:

Þátttakendur vinna verkefni sem fógið er í að setja inn inn tölur úr síðasta ársreikningi og skrá starfsmenn ásamt vélum sem þeir vill verðleggja sérstaklega inn í TAXTA. Þegar það hefur verið gert liggur niðurstaðan fyrir þá sést hver raunverulegur kostnaður er.

Á námskeiðinu er kennd notkun á TAXTA ásamt reiknilíkönum í excel sem hvort tveggja er innifalið í námskeiðsgjaldinu.  Þátttakendur eiga að mæta með eing fartölvu á námskeiðið.

Verð 45.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 9.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Staðsetning
Húsnæði Öryggisskólans, Stórhöfða 27, 110 Reykjavík
21. október 2026 kl: 13:00 - 19:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Sylvía Björk Ólafsdóttir - [email protected]
Eyjólfur Bjarnason
Kennari
Eyjólfur Bjarnason
Byggingatæknifræðingur

Eyjólfur er byggingatæknifræðingur frá Noregi. Hann hefur starfað sem öryggis- og gæðastjóri, ráðgjafi og bæjartæknifræðingur.