ÍST 30 við framkvæmdir

Verð fyrir félagsmenn
5.000 kr.
Verð
25.000 kr.
ÍST 30 við framkvæmdir
Námskeið fyrir iðnmeistra og verktaka um staðlainn ÍST 30 - almenna útboðs og samningsskilmála um verkframkvæmdir og notkun hans.

Fyrir hverja:

Þetta námskeið er fyrir iðnmeistara og verktaka sem eru að vinna samningsverk fyrir verkkaupa þar sem ÍST 30 er hluti samnings.

Markmið:

Markmiðið er að þátttakendur þekki helstu ákvæði staðalsins og læri nota hann við samningagerð og framkvæmd verka.

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Helstu atriði staðalsins sem varða samskipti verktaka og verkkaupa.
  • Dæmi um ágreining sem komið hefur upp í samskiptum verktaka og verkkaupa.
  • Úrskurði í ágreiningsmálum sem farið hafa fyrir úrskurðarnefndir og dómstóla. 

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja helstu ákvæði ÍST 30.
  • Vita hverning samskiptum verktaka og verkkaupa er háttað í megindráttum samkvæmt ákvæðum staðalsins.

Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík

30. september 2026 kl: 09:00 - 12:00
Setja í dagatal
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám með möguleika á fjarnámi
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Elías Bjarnason
Kennari
Elías Bjarnason
byggingaverkfræðingur

Elias er byggingarverkfræðingur með meistaragráðu í framkvæmdastjórnun. Hann hefur starfað sem verkefnastjóri og ráðgjafi hjá opinberum stofnunum og einkafyrirtækjum bæði á Íslandi og í Noregi, auk þess að kenna og leiðbeina um útboð, samninga og rakavarnir í byggingum.