Gaslagnir

Verð fyrir félagsmenn
11.000 kr.
Verð
55.000 kr.
Gaslagnir
Námskeið fyrir lagnamenn sem vilja leggja gaslagnir með réttum hætti í íbúðarhúsnæði, veitingahús, sumarhús og iðnaðarhúsnæði o.fl.

Fyrir hverja:

Þetta er námskeið fyrir lagnamenn sem vilja leggja gaslagnir með réttum hætti í íbúðarhúsnæði, veitingahús, sumarhús og iðnaðarhúsnæði o.fl.

Markmið:

Að þátttakendur fræðist um helstu þætti sem varða lagnir fyrir gas og frágang þeirra.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Lagnir fyrir gas við mismunandi aðstæður
  • Gaslagnir í ólíkum gerðum bygginga, í íbúðarhúsæði, veitingahúsum, sumarhúsum og iðnaði
  • Efni sem notuð eru til gaslagna og meðferð þeirra
  • Frágang gaslagna ásamt tenginu röra og tækja
  • Yfirferð gastækja vegna suðu, upphitunar og geymslu á gasi

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja gaslagnir við sem notaðar eru mismunandi aðstæður
  • Kunna skil á gaslögnum í ólíkum gerðum bygginga, sem og í iðnaði
  • Þekkja efnins em notuð eru við gaslagnir
  • Kunni á frágang gaslagna og tengingu röra og tækja
  • Geta yfirfarið gastæki m.t.t. suðu, upphitunar og geymslu

10. nóvember 2026 kl: 09:00 - 16:00
Setja í dagatal
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Námsmat
100% mæting
Kennarar
Þráinn Sigurðsson
Þráinn Sigurðsson
Gassérfræðingur
Ágúst Ágústsson
Ágúst Ágústsson
Iðnaðartæknifræðingur

Ágúst er Iðnaðartæknifræðingur að mennt. Hann starfaði hjá Vinnueftirlitinu frá 1996 til 2024 fyrst sem deildarstjóri katla- og þrýstihylkjadeildar og færðist síðar í tæknideild fyrst sem aðstoðardeildarstjóri en frá 2015 sem deildarstjóri tæknideildar Vinnueftirlitsins. Ágúst er m.a. sérfræðingur í vélum, þrýstibúnaði þar með talið gufukerfum, CE merkingum og gasbúnaði.

Guðmundur Gunnarsson
Guðmundur Gunnarsson
byggingaverkfræðingur

Guðmundur er MSc í byggingarverkfræði frá Aalborg Universitetcenter og MPA í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Hann er löggiltur hönnuður aðaluppdrátta, lagna og burðarþols. Guðmundur hefur áratuga reynslu af að skipuleggja og kenna eldvarnaeftirlitsmönnum að skoða hús eftir forskrifuðum reglum. Hann er stundakennari við Háskólann í Reykjavík og kennir við endurmenntun fag- og iðnaðarmanna hjá Iðunni, Rafiðnaðarskólanum og á námskeiðum í samstarfi við Vinnueftirlitið.