Frágangur raka-, vind- og vatnsvarnarlaga með efnum frá SIGA

Verð fyrir félagsmenn
7.000 kr.
Verð
35.000 kr.
Frágangur raka-, vind- og vatnsvarnarlaga með efnum frá SIGA
Námskeið um réttan og öruggan frágang á SIGA efnum

Fyrir hvern:

Þetta námskeið er fyrir húsasmiði sem vilja kynna sér frágang byggingahluta með SIGA efnum.

Markmið:

Að þátttakendur fái góða yfirsýn yfir efnin frá SIGA og aðferðir við notkun þeirra.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Efni frá SIGA sem notuð eru til frágangs á raka-, vind- og vatnsvarnarlögum á húsum og hvernig gengið er frá þeim á réttan hátt
  • Mismunandi byggingahluta og frágang á þeim
  • Þau verkfæri og áhöld sem henta best við mismunandi verk
  • Hvernig best er að vinna með efnin frá SIGA og fá þátttakendur þjálfun í því

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja efnin frá SIGA sem notuð eru til frágangs á raka-,vind- og vatnsvarnarlögum í byggingum
  • Kunna aðferðir við frágang á mismunandi byggingahlutum
  • Þekkja verkfæri og áhöld sem henta við frágangsvinnu
  • Geta unnið með efni frá SIGA í byggingum.

Annað:

Námskeiðið er haldið í samvinnu við SIGA Swiss.

Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík

20. nóvember 2026 kl: 13:00 - 19:00
Setja í dagatal
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Agnar Snædahl
Kennari
Agnar Snædahl
Byggingaverkfræðingur og húsasmíðameistari

Agnar er burðarþolshönnuður og hefur víðtæka þekkingu á eðlisfræði bygginga. Hann skrifaði um rakabúskap byggingarhluta 1 og 2, skrifað greinar í blöð, kennt eðlisfræði byggingar við HR, ritrýnt og skrifað Rb- blöð og fl.