Þetta námskeið er fyrir byggingarstjóra og aðra sem vinna með Mannvirkjaskrá HMS.
Tilgangur þess er að fræða þátttakendur um gerð og virkni Mannvirkjaskrár til að auðvelda þeim notkun á henni.
Þátttakendur munu vinna með Mannvirkjaskrána og eru beðnir um að mæta með eigin tölvur á námskeiðið.
Námskeiðið er haldið í samvinnu við Húsnæðis-, skipulags- og mannvirkjastofnun, HMS og eru leiðbeinendur sérfræðingar HMS.
Jónas er byggingafræðingu og húsasmíðameistari og starfaði í byggingargeiranum í á annan áratug. Hann hefur einnig starfað á arkitekta og hönnunarstofum í tæpan áratug við hönnun og ráðgjöf. Einnig starfaði hann í 7 ár hjá banka við umsýslu á fasteignasafni, verðmöt eigna og framvinduskoðanir ofl. Í dag starfar hann sem sérfræðingur hjá HMS.