Tilraunaeldhúsið - Nútíma matargerðalist
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hvern:
Þetta námskeið er ætlað matreiðslumönnum og öðru fagfólki í matvælageiranum sem vill dýpka þekkingu sína á efnafræðilegum hjálparefnum í nútíma matreiðslu, og hagnýtingu virkra matvælaefna.
Markmið :
Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum traustan skilning á nútíma matreiðsluaðferðum og virkni sérhæfðra hjálparefna. Að námskeiði loknu hafa þátttakendur aukið öryggi og skilning á notkun efnafræði í matreiðslu og geta beitt nútímatækni markvisst til að þróa nýjar uppskriftir og bæta gæði rétta.
- Að skilja vísindin á bak við nútíma matreiðslutækni
- Hýdrókolloid og áferðarefni
- Gel, emulsionsefni, froða og espuma
- Áferðarhönnun og skynjun
- Val á innihaldsefnum
- Hagnýt notkun á nútímatækni
- Sköpunargáfa, samræmi og þróun matseðla
Lýsing:
Á þessu hagnýta námskeiði er farið yfir hvernig vísindi og matargerð vinna saman til að skapa nýjar upplifanir. Þátttakendur kynnast virkni algengustu hjálparefna sem notuð eru í nútíma matargerð, meðal annars hleypiefnum, ýruefnum, froðum, geli og kúlun (spherification).
Áhersla er lögð á að skilja af hverju ákveðin efni eru notuð, hvenær þau henta best og hvernig þau eru nýtt á réttan hátt. Kennslan byggir á blöndu af fræðslu og verklegum æfingum þar sem þátttakendur prófa tæknina sjálfir og læra að þróa og bæta uppskriftir með markvissri nálgun.
Additional Information:
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Camilo Medina
Camilo Medina er matreiðslumaður frá Úrúgvæ sem sérhæft hefur sig í efnafræði matargerðar, matvælavísindum og nýtingu nútíma hjálparefna í matreiðslu. Hann er með meistaragráðu í efnafræði matreiðslu „Molecular gastronomy“ frá Basque Culinary Center og hefur starfað með heimsþekktum matreiðslumeisturum á borð við Martín Berasategui en hann er sá spænski matreiðslumaður sem hlotið hefur flestar Michelin-stjörnur eða alls 12 á ferlinum og Romain Fornell sem hlaut sína fyrstu Michelin-stjörnu aðeins 24 ára gamall og varð þá yngsti franski matreiðslumaðurinn til að hljóta Michelin-stjörnu á þeim tíma. Camilo hefur brennandi áhuga á að deila þekkingu sinni á vísindunum á bak við nútíma matargerð og hjálpa öðrum matreiðslumönnum að þróa sköpunargáfu, sjálfstraust og dýpri skilning á hagnýtum efnum og nútímalegum aðferðum.
Tungumál: Enska
Snið: Aðallega verkleg þjálfun
Lengd námskeiðs: Tvö síðdegi (6 klukkustundir hvorn dag)
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.