Rakamælingar í byggingum
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Þetta námskeið er fyrir fagfólk í byggingariðnaði sem vill gæta að réttu rakastigi í byggingum og byggingarefnum.
Markmið:
Markmið þess er að fræða þátttakendur um notkun rakamæla í byggingum.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Raka og æskilegt rakastg í húsum og mismunandi byggingarhlutum og byggingarefnum og hvað telst vera eðlilegur raki í þeim.
- Rakamælingar, hvernig þær eru framkvæmdar og með hvaða tækjum.
- Hvernig á að bera sig að við rakamælingar og hvað ber að varast.
- Mælitækin, virkni þeirra og stillingar eftir mismunandi byggingarefnum o.s.frv.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Kunna skil á raka og rakastigi.
- Þekkja æskilegan raka í byggingum og byggingarefnum.
- Vita hvernig framkvæma á rakamælingar í húsum.
Aðrar upplýsingar:
Á námskeiðinu eru unnin verkefni og framkvæmdar mælingar með mælitækjum frá Protimeter.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Hlynur hefur um margra ára skeið unnið að fjölmörgum verkefnum tengdum innivist, ástandsskoðunum, gallagreiningum, tillögum að endurbótum og viðhaldi bygginga (
Gústaf er húsasmiður, byggingafræðingur og með mastersgráðu í byggingaeðlisfræði. Hann hefur fjölbreytta reynslu og breiðan bakgrunn úr byggingariðnaði, m.a. verið verktaki í nýsmíði og viðhaldsmálum, hönnuður, rekstrarstjóri stórra bygginga og í verkfræðilegri ráðgjöf.