Trjáfellingar og grisjun með keðjusög

Í samstarfi við Garðyrkjuskólinn - Fsu
Staðsetning
Skógræktin, Hallormsstað, 701 Egilsstöðum
23. október 2026 kl: 09:00 - 17:30
24. október 2026 kl: 09:00 - 17:30
25. október 2026 kl: 09:00 - 17:30
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Sylvía Björk Ólafsdóttir - [email protected]
Verð 84.900 kr.
Verð fyrir félagsmenn 19.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Trjáfellingar og grisjun með keðjusög
Námskeið sem hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa notað keðjusagir en vilja bæta fellingartækni sína eða öðlast meiri þekkingu á meðferð og umhirðu saga.

Fyrir hverja:

Námskeiðið er öllum opið. Það hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa notað keðjusagir en vilja bæta fellingartækni sína eða öðlast meiri þekkingu á meðferð og umhirðu saga.

Lýsing:

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. Fyrsti dagur er bóklegur þar sem meðal annars er farið yfir fellingartækni, öryggisatriði við fellingu trjáa og líkamsbeitingu. Farið verður yfir leyfi og öryggissjónarmið varðandi fellingu trjáa í þéttbýli. Einnig verður fjallað um val á trjám til fellinga og komið inn á grisjun skóglenda, trjáþyrpinga og garða. Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusagarinnar með því að taka þær í sundur. Farið verður yfir það hvernig framkvæma eigi einfalda bilanaleit í söginni, ásamt hefðbundnu viðhaldi, þrif sagar og brýningu keðju. Loks verður einn og hálfur verklegur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi, þar sem lögð verður áhersla á rétta fellingartækni og uppröðun viðarins.

Annað:

Þeir nemendur sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm taki það með á námskeiðið. Aðrir geta fengið búnað lánaðan á námskeiðinu.

Kennari er Björgvin Örn Eggertsson skógfræðingur.

Námskeiðið er haldið af Garðyrkjuskólanum - FSu

Verð 84.900 kr.
Verð fyrir félagsmenn 19.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Staðsetning
Skógræktin, Hallormsstað, 701 Egilsstöðum
23. október 2026 kl: 09:00 - 17:30
24. október 2026 kl: 09:00 - 17:30
25. október 2026 kl: 09:00 - 17:30
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Sylvía Björk Ólafsdóttir - [email protected]
Kennari
Kennarar Garðyrkjuskólans