Sólpallar og skjólgirðingar
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Þetta námskeið er fyrir alla sem ætla sér að smíða sólpalla og skjólgirðingar.
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Ýmsar útfærslur og hvernig hægt er að mynda gott samræmi milli húss, palls og skjólgirðinga.
- Skjól sem er forsenda þess að góðir útivistardagar á pallinum verði sem flestir.
- Gerð grindarteikninga, útfærslu og smíði.
- Helstu timburtegundir og notkun þeirra.
- Festingar, undirstöður og frágang.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja grundvallaratriði góðrar útfærslu miðað við aðstæður.
- Þekkja leiðir til að mynda skjól á sólpalli.
- Geta rissað upp drög teikningum.
- Þekkja efni sem notað er við smíðar á sólpöllum og skjólgirðingum
Annað:
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Björn Jóhannsson landslagsarkitekt. Hann hefur um margra ára skeið hannað lóðir og garða af öllum stærðum og gerðum. Björn er höfundur bókarinnar Draumagarður og hefur einnig sett saman leiðbeiningarrit um smíði sólpalla og skjógirðinga, hellulagnir og hleðslur í görðum.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Landslagsarkitekt hjá Urban Beat Design