Gervigreind í starfi iðnaðarmanna

Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík
6. október 2026 kl: 09:00 - 12:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Verð 45.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 9.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Gervigreind í starfi iðnaðarmanna
Hagnýtt hálfs dags námskeið fyrir iðnaðarmenn sem vilja læra að nýta gervigreind í daglegu starfi. Þátttakendur kynnast einföldum og gagnlegum leiðum til að nota gervigreind meðal annars við upplýsingaleit, tilboðsgerð, skipulag og samskipti.

Fyrir hverja:

Námskeiðið er ætlað iðnaðarmönnum, bæði sjálfstætt starfandi og þeim sem starfa hjá fyrirtækjum, sem vilja nýta gervigreind til að einfalda verkefni, spara tíma og bæta vinnubrögð. Ekki er gerð krafa um fyrri þekkingu á gervigreind.

Markmið:

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist hagnýta færni í notkun gervigreindar sem nýtist þeim í starfi. Áhersla verður lögð á að þátttakendur læri að nota aðgengileg gervigreindartól á markvissan og ábyrgan hátt.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Grunnatriði gervigreindar og notkun hennar í iðngreinum.
  • Notkun gervigreindartóla á borð við Claude.
  • Upplýsingaleit, tilboðsgerð, skipulag og samskipti.
  • Tengingar við tölvupóst, dagatal og önnur gagnleg kerfi.
  • Hagnýtar æfingar, ábyrg notkun og persónuvernd.

Að loknu námskeiði á nemandi að geta:

  • notað gervigreindartól við dagleg verkefni;
  • sett fram skýrar og markvissar fyrirspurnir;
  • nýtt gervigreind við upplýsingaleit, skipulag, tilboðsgerð og samskipti;
  • metið niðurstöður og notað tæknina á öruggan og ábyrgan hátt.

Aðrar upplýsingar:

Kennarar á námskeiðinu eru Hjörtur Sigurðsson sérfræðingur í gervigreind, og Axel Axelsson, nemi í pípulögnum. Saman tengja þeir þekkingu á gervigreind við hagnýta reynslu og raunveruleg verkefni úr starfsumhverfi iðnaðarmanna.

Verð 45.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 9.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík
6. október 2026 kl: 09:00 - 12:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Kennarar
Hjörtur Sigurðsson
Hjörtur Sigurðsson
Verkfræðingur

Hjörtur Sigurðsson er verkfræðingur hjá Mynstru. Hann hefur um árabil unnið að því að innleiða stafræna tækni í byggingariðnaðinn, með sérstakri áherslu á BIM, gervigreind og stafræn vinnubrögð.

Axel Axelsson
iðnnemi

Axel Axelsson starfar sem nemi í pípulögnum hjá AH Pípulögnum. Hann notar gervigreind reglulega í verkefnum sínum á sviði pípulagna.