HACCP kröfur um hreinlæti við lagnavinnu

Staðsetning
Húsnæði Öryggisskólans, Stórhöfða 27, 110 Reykjavík
29. október 2026 kl: 10:00 - 12:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám með möguleika á fjarnámi
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Sylvía Björk Ólafsdóttir - [email protected]
Verð 25.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 5.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

HACCP kröfur um hreinlæti við lagnavinnu
HACCP kröfur um hreinlæti við lagnavinnu

Fyrir hverja:

Námskeiðið er fyrir alla sem koma að vinnu við að leggja vatnslagnir í jörð og neysluvatnslagnir utanhúss og innan.

Markmið:

Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu og skilning þátttakenda á hættum sem stafa af skorti á hreinlæti við lagningu neysluvatnslagna og að stuðla að góðum starfsháttum samkvæmt HACCP kerfinu.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Hættur í lagnavinnu þar á meðal örverur, ofnæmisvalda og mengun
  • Rétta meðferð, móttöku og geymslu lagna.
  • Forvarnir gegn krossmengun og mikilvægi réttra vinnubragða.
  • Persónulegt hreinlæti, þrif og þrifaáætlanir
  • Eftirlit, ábyrgðarskiptingu og hlutverk starfsfólks og stjórnenda

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Skilja grundvallaratriði varðandi hreinlæti og matvælaöryggi.
  • Þekkja helstu hættur við lagningu og frágang neysluvatnslagna
  • Kunna að beita góðum starfsháttum í daglegu starfi

Verð 25.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 5.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Staðsetning
Húsnæði Öryggisskólans, Stórhöfða 27, 110 Reykjavík
29. október 2026 kl: 10:00 - 12:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám með möguleika á fjarnámi
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Sylvía Björk Ólafsdóttir - [email protected]
Elísabet Katrín Friðriksdóttir
Kennari
Elísabet Katrín Friðriksdóttir
matartæknir og verkefnastjóri

Elísabet Katrín er með:
B.A.-gráðu í Nútímafræði
M.A.-gráðu í Hagnýtri siðfræði með áherslu á náttúru- og umhverfissiðfræði
Diplómu í Verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun (VOGL) – Leiðtogafærni, samskiptafærni, stefnumótunarfærni og skipulagsfærni
Diplómu í Samningatækni og afburðarstjórnun (SOGA) – Gæðastjórnun, markþjálfun, afburðastjórnun og samningatækni

Hún hefur áralanga reynslu í gæðamálum, kennslu og HACCP-innleiðingu og hefur starfað sem gæðavörður, setið í HACCP-hópum og kennt fjölda námskeiða á þessu sviði.