Trérennismíði

Staðsetning
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti - verknámshús, Hraunberg 8, 111 Reykjavík
14. nóvember 2026 kl: 09:00 - 16:00
15. nóvember 2026 kl: 09:00 - 16:00
Setja í dagatal
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
Mæting og verkefnavinna
Tengiliður
Sylvía Björk Ólafsdóttir - [email protected]
Verð 129.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 26.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Trérennismíði
Námskeið fyrir öll sem vilja búa til trégripi í rennibekk.

Fyrirhvern:

Þetta námskeið er fyrir þai sem vilja læra að nota rennibekk við trésmíðar.

Markmið:

Markmið þess er að kenna þátttakendum meðferð efnis og véla í vinnu við trérennismíði.

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Undirstöðuatriði varðandi notkun rennibekkja og verklegar æfingar.
  • Rennibekk og uppbyggingu hans.
  • Helstu verkfæri og notkun þeirra.
  • Verkefni í rennibekk milli odda (oddur notaður í stað patrónu).
  • Rennt kefli, hvaða járn henta best, endað á sléttun með hefiljárni.
  • Renndar kúpur, baugar og kambar á keflið.
  • Hvernig mismunandi járn eru slípuð og hvaða halli hentar þér.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Kunna skil á grunnatriðum varðandi vinnu við rennibekk.
  • Kunna á helstu járn sem notuð eru við trérennismíði.
  • Þekkja helstu verkfæri sem notuð eru.
  • Geta rennt einfalda trégripi.

Annað:

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Félag trérennismiða.

Verð 129.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 26.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Staðsetning
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti - verknámshús, Hraunberg 8, 111 Reykjavík
14. nóvember 2026 kl: 09:00 - 16:00
15. nóvember 2026 kl: 09:00 - 16:00
Setja í dagatal
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
Mæting og verkefnavinna
Tengiliður
Sylvía Björk Ólafsdóttir - [email protected]
Kennari
Magnús Kristmannsson
Húsasmíðameistari