CE merkingar byggingarvara

Staðsetning
Hús Fagfélaganna-Herðubreið, Stórhöfði 29, 110 Reykjavík
10. nóvember 2026 kl: 09:00 - 12:00
Setja í dagatal
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám með möguleika á fjarnámi
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
Mæting
Tengiliður
Sylvía Björk Ólafsdóttir - [email protected]
Verð 5.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 1.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

CE merkingar byggingarvara
Námskeið fyrir starfsmenn verktakafyrirtækja, iðnmeistara, hönnuði og aðra sem annast val og innkaup á byggingarvörum.

Fyrir hvern:

Námskeiðið er ætlað starfsmönnum verktakafyrirtækja, iðnmeisturum, hönnuðum, framleiðendum og söluaðilum byggingarvara, sem og öðrum sem bera ábyrgð á innkaupum, markaðssetningu eða notkun byggingarvara.

Markmið:

Að þátttakendur öðlist skilning á kröfum sem gilda um byggingarvörur, þar á meðal CE-merkingar og skyldur markaðsaðila, þannig að þeir geti metið byggingarvörur í samræmi við gildandi reglur og kröfur.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Lög og reglugerðir um byggingarvörur og kröfur um CE merkingar
  • Gildi CE merkinga
  • Samhæfða staðla og gildi þeirra
  • Eiginleika byggingarvara sem ber að staðfesta þegar samhæfður staðall er ekki fyrir hendi.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja lög og reglugerðir um byggingarvörur og þær kröfur sem gilda um CE merkingar
  • Þekkja gildi CE merkinga á byggingarvörum
  • Kunni skil á samræmdum stöðlum fyrir framreiðslu á byggingarvörum
  • Viti hvaða eiginleika þarf að staðfesta þegar CE merking er ekki til staðar.

Annað:

Námskeiðið er haldið í samvinnu við HMS.

Verð 5.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 1.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Staðsetning
Hús Fagfélaganna-Herðubreið, Stórhöfði 29, 110 Reykjavík
10. nóvember 2026 kl: 09:00 - 12:00
Setja í dagatal
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám með möguleika á fjarnámi
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
Mæting
Tengiliður
Sylvía Björk Ólafsdóttir - [email protected]
Þórhallur Óskarsson
Kennari
Þórhallur Óskarsson
Sérfræðingur HMS

Þórhallur er blikksmiður, iðnrekstrarfræðingur og iðnaðartæknifræðingur.  Hann starfaði við sölu á stáli, málmum og byggingarvörum í 30 ár. Í dag starfar hann við markaðseftirlit með byggingarvörum hjá HMS.