Innri úttektir

Staðsetning
Húsnæði Öryggisskólans, Stórhöfða 27, 110 Reykjavík
3. nóvember 2026 kl: 13:00 - 17:00
Setja í dagatal
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Sylvía Björk Ólafsdóttir - [email protected]
Verð 45.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 9.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Innri úttektir
Námskeið fyrir umsjónarmenn gæðastjórnunarkerfa, núverandi og verðandi innri úttektarmenn sem starfa eftir vottuðum gæðakerfum eða kerfum sem byggð eru upp miðað ISO stjórnunarstaðla (ISO 9001, 14001 osfrv.).

Fyrir hverja:

Umsjónarmenn gæðastjórnunarkerfa, núverandi og verðandi innri úttektarmenn. Námskeiðið er sérsniðið að þörfum byggingariðnaðarins en getur vel nýst þeim sem starfa í öðrum geirum.

Námskeiðið nýtist þeim sem starfa eftir vottuðum kerfum eða kerfum sem byggð eru upp miðað ISO stjórnunarstaðla (ISO 9001, 14001 osfrv.).

Markmið:

Að þátttakendur öðlist færni og tól til að framkvæma árangursríkar innri úttektir, greina frávik og umbótatækifæri og fylgja niðurstöðum eftir þannig að þær skili raunverulegu virði fyrir reksturinn.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Innri úttektaráætlanir – stuttlega farið yfir kröfur til innri úttektaráætlana og hvað ber að hafa í huga. Hvernig fáum við sem mest útúr innri úttektum.
  • Undirbúningur og gerð gátlista.
  • Framkvæmd: Spurningatækni, viðtöl, söfnun og skráning sönnunargagna.
  • Úrvinnsla: Skilgreining frávika og umbótatækifæra og skýrslugerð.
  • Eftirfylgni: Rótargreining og umbótaverkefni.

Að loknu á nemandi að:

  • Skilja tilgang og ferli innri úttekta
  • Geta framkvæmt innri úttekt frá A til Ö; undirbúið og framkvæmt, skráð skýrslu, skilgreint og skráð frávik og fylgt eftir niðurstöðum.

Annað:

Innri úttektir eru eitt albesta tólið sem fylgir því að vera með vottað gæðakerfi. Þær gefa innri úttektarmönnum tækifæri til að kynnast og rýna önnur verkefni og/eða ferla fyrirtækisins en menn eru að vinna í dagsdaglega og eru frábær leið til að koma auga á tækifæri til umbóta og skapa umræður um þau. Í innri úttektum skiptir lykilmáli að ferlið í kringum úttektirnar og skýrslugerð sé eins einföld og hægt er og að halda fókus á aðalatriðum þannig að ferlið verði ekki íþyngjandi og skili sem mestum árangri.

Verð 45.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 9.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Staðsetning
Húsnæði Öryggisskólans, Stórhöfða 27, 110 Reykjavík
3. nóvember 2026 kl: 13:00 - 17:00
Setja í dagatal
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Sylvía Björk Ólafsdóttir - [email protected]
Sigrún Melax
Kennari
Sigrún Melax
Gæða- og öryggisstjóri

Sigrún Melax er verkfræðingur sem unnið hefur við gæðastjórnun um árabil. Hún hefur víðtæka reynslu af fjölbreyttum hliðum gæðastjórnunar, svo sem uppsetningu, innleiðingu og rekstri gæðakerfa og virkniskoðunum.