Tilboðsgerð verktaka
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Þetta námskeið er fyrir iðnmeistara og minni verktaka sem ætla að gera tilboð í verkefni og verkhluta.
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Lög og reglur um útboð.
- Magntölur og magntöku einstakra verkþátta.
- Einingaverð og útreikning þeirra.
- Tilboðsskrár og tilboðsgerð.
- Skil á tilboðum.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja helstu ákvæði laga og reglna um útboð.
- Kunna að magntaka og setja fram magntölur
- Reikna einingaverð.
- Kunna að fylla út tilboðsskrá og tilboðsblað og skila til verkkaupa.
Annað:
Á námskeiðinu eru unnin nokkur verkefni úr hverjum þætti þess. Þátttakendur þurfa að hafa með sér tölvu.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Elias er byggingarverkfræðingur með meistaragráðu í framkvæmdastjórnun. Hann hefur starfað sem verkefnastjóri og ráðgjafi hjá opinberum stofnunum og einkafyrirtækjum bæði á Íslandi og í Noregi, auk þess að kenna og leiðbeina um útboð, samninga og rakavarnir í byggingum.