Ísetning glugga og slagregnsprófun á henni
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Þetta er námskeið fyrir alla sem setja glugga í hús og þétta með þeim.
Markmið:
Markmið með námskeiðinu er að fræða þátttakendur um örugga þéttingu við ísetningu glugga og hurða og kenna þeim einfalda aðferð til að slagregnsprófa þá.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Kröfur um eiginleika glugga í íslenskri byggingarreglugerð og merkingu hugtakanna tveggja þrepa þétting, rakaflæði, rakastreymi o.s.frv.
- Þéttingu á ísetningu glugga við ýmsar aðstæður með ólíkum efnum.
- Námskeiðið byggir á forsendum þess sem kemur fram á síðunni www.hansen.is
- Á námskeiðinu verða gerðar prófanir og mælingar í sérstökum kennslutækjum þar sem hægt er að framkalla stórviðri og sjá hvernig mismunandi þéttingar standast álagið.
- Að lokum verður framkvæmt slagregnspróf á glugga í steyptum vegg við aðstæður sambærilegar byggingarstað.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Kunna skil á helstu kröfum sem gerðar eru til glugga í stöðlum og reglugerðum.
- Þekkja grundvallaratriði tveggja þrepa þéttingar og hvernig hún er framkvæmd á byggingarstað.
- Geta slagregnsprófað glugga á byggingarstað skv. þeirri aðferðafræði sem kennd er á námskeiðinu.
Annað:
Í lok námskeiðs framkvæma þátttakendur sjálfir slagregnspróf á þéttleika á gluggaísetningu.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Ferdinand er menntaður í framleiðslufræði en er einnig húsasmiður með meistararéttindi. Hann er sérfræðingur í gæðastjórnun, gluggaframleiðslu og slagregnsprófunum. Hann hefur starfað sem ráðgjafi og leiðbeinandi á sviði gæðastjórnunar og öryggismála í áratugi.