ÍST 30 við framkvæmdir
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Þetta námskeið er fyrir iðnmeistara og verktaka sem eru að vinna samningsverk fyrir verkkaupa þar sem ÍST 30 er hluti samnings.
Markmið:
Markmiðið er að þátttakendur þekki helstu ákvæði staðalsins og læri nota hann við samningagerð og framkvæmd verka.
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Helstu atriði staðalsins sem varða samskipti verktaka og verkkaupa.
- Dæmi um ágreining sem komið hefur upp í samskiptum verktaka og verkkaupa.
- Úrskurði í ágreiningsmálum sem farið hafa fyrir úrskurðarnefndir og dómstóla.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja helstu ákvæði ÍST 30.
- Vita hverning samskiptum verktaka og verkkaupa er háttað í megindráttum samkvæmt ákvæðum staðalsins.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Elias er byggingarverkfræðingur með meistaragráðu í framkvæmdastjórnun. Hann hefur starfað sem verkefnastjóri og ráðgjafi hjá opinberum stofnunum og einkafyrirtækjum bæði á Íslandi og í Noregi, auk þess að kenna og leiðbeina um útboð, samninga og rakavarnir í byggingum.