Vatnsúðakerfi – sprinkler

Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík
29. janúar 2027 kl: 13:00 - 19:00
30. janúar 2027 kl: 09:00 - 16:00
Setja í dagatal
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
Próf
Tengiliður
Sylvía Björk Ólafsdóttir - [email protected]
Verð 65.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 13.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Vatnsúðakerfi – sprinkler
Námskeið sem er ætlað pípulagningamönnum með full réttindi sem ætla sér að annast þjónustu og eftirlit með vatnsúðakerfum.

Fyrir hverja:

Þetta námskeið er ætlað pípulagningamönnum með full réttindi sem ætla sér að annast þjónustu og eftirlit með vatnsúðakerfum.

Markmið:

Tilgangur námskeiðsins er að fræða þátttakendur um gerð og virkni vatnsúðakerfa og hlutverk og ábyrgði þjónustu og eftirlitsaðila.

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Hönnun vatnsúðakerfa.
  • Staðla, lög og reglugerðir sem eru í gildi.
  • Lagnaefni sem notað er í vatnsúðakerfi.
  • Virkni vatnsúðakerfa og hún sýnd í sprinkler kennslukerfi IÐUNNAR sem er uppsett í Vatnagörðum.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja grundvallaratriði varðandi hönnun vatnsúðakerfa.
  • Kunna skil á helstu ákvæðum laga og reglugerða um vatnsúðakerfi.
  • Þekkja gerð og notkun lagnaefnis.
  • Vita hvernig vatnsúðakerfi virka.
  • Geta prófað virkni vatnsúðakerfa.

Annað:

Námskeiðið er haldið í samræmi við 14. gr reglugarðar um þjónustuaðila brunavarna og lýkur með prófi. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sem gefur út leyfi til þeirra sem ljúka prófi með fullnægjandi árangri. Öllum er frjáls þátttaka á námskeiðnu en einungis löggiltir pípulagningameistarar öðlast réttindi til að hafa eftirlit með slökkvikerfum

Verð 65.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 13.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík
29. janúar 2027 kl: 13:00 - 19:00
30. janúar 2027 kl: 09:00 - 16:00
Setja í dagatal
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
Próf
Tengiliður
Sylvía Björk Ólafsdóttir - [email protected]
Kennarar
Guðmundur Gunnarsson
Guðmundur Gunnarsson
byggingaverkfræðingur

Guðmundur er MSc í byggingarverkfræði frá Aalborg Universitetcenter og MPA í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Hann er löggiltur hönnuður aðaluppdrátta, lagna og burðarþols. Guðmundur hefur áratuga reynslu af að skipuleggja og kenna eldvarnaeftirlitsmönnum að skoða hús eftir forskrifuðum reglum. Hann er stundakennari við Háskólann í Reykjavík og kennir við endurmenntun fag- og iðnaðarmanna hjá Iðunni, Rafiðnaðarskólanum og á námskeiðum í samstarfi við Vinnueftirlitið.

Egill Ásgrímsson
Egill Ásgrímsson
Pípulagningameistari

Egill er pípulagningarmeistari og hefur unnið við vatnsúðaslökkvikerfi allt frá árinu 1984. Hann hefur flutt inn efni og búnað fyrir sprinklerlagnir. Hann hefur um árabil starfað við eftirlit , úttektir og ráðgjöf á sprinklerkerfum.