Ljósvist

Staðsetning
Iðan Stórhöfða, Stórhöfði 27, 110 Reykjavík
19. nóvember 2026 kl: 13:00 - 16:00
Setja í dagatal
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Sylvía Björk Ólafsdóttir - [email protected]
Verð 35.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 7.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Ljósvist
Námskeið fyrir fagfólk í byggingariðnaði sem vill fræðast um kröfur byggingarreglugerðar um ljósvist. M.a. hvernig gluggastærðir og gluggastaðsetningar eru ákvarðaðar, hvernig staðið er að á endurnýjun eða uppsetningu raflýsingar og hönnun á ljósastýringu.

Fyrir hverja:

Námskeið fyrir fagfólk í byggingariðnaði sem kemur að hönnun húsa, ákvörðun gluggastærða og gluggastaðsetninga, bera ábyrgð á endurnýjun eða uppsetningu raflýsingar og forrita ljósastýringakerfi.

Markmið:

Markmið námskeiðsins er að kenna þáttakendum grundvallaratriði og almennt hvað þarf að huga að varðandi ljósvist .

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Ákvæði byggingareglugerðar
  • Dagslýsingu í byggingum
  • Raflýsing í byggingum
  • Ljósastýringar í byggingum

Útgangspunktur er ástæðan fyrir því afhverju ljósvist er mikilvæg og samhengi við kröfur byggingarreglugerðar

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Kunna skil á helstu hugtökum ljósvistar
  • Skilja hvað er mikilvægt að huga að varðandi ljósvist
  • Gera sér grein fyrir hvað þarf að gera varðandi ljósvist til að uppfylla byggingareglugerð

Verð 35.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 7.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Staðsetning
Iðan Stórhöfða, Stórhöfði 27, 110 Reykjavík
19. nóvember 2026 kl: 13:00 - 16:00
Setja í dagatal
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Sylvía Björk Ólafsdóttir - [email protected]
Ásta Logadóttir
Kennari
Ásta Logadóttir
Verkfræðingur PhD

Ásta Logadóttir er verkfræðingur og sérfræðingur í ljósvist. Sérþekking Ástu felst í greiningu og ráðgjöf um dagsbirtu, sólarljós, skuggavarp og raflýsingu í byggingum og skipulagi. Hún leggur áherslu á að birtuskilyrði séu metin snemma í hönnunarferlinu, þannig að hægt sé að taka upplýstar ákvarðanir um form bygginga, glugga, rýmisskipulag og samspil byggðar.

​Ásta hefur unnið að þróun og innleiðingu viðmiða um dagsbirtu í byggingum, meðal annars við tillögur að breytingum á byggingarreglugerð í Danmörku og á Íslandi. Hún hefur jafnframt tekið virkan þátt í faglegri umræðu um mikilvægi ljóss fyrir líkamlega og andlega heilsu fólks, einkum í þéttri byggð.