Stefnumót við hönnuð-Möguleikar Illustrator
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Þetta námskeið hentar öllu fagfólki í prent- og auglýsingaiðnaði sem hefur áhuga á hönnun og þróun í umbroti.
Markmið:
Markmið þessa námskeiðs er að uppfæra grunnþekkingu fólks á Illustrator forritinu og kynnast fleiri möguleikum þess í gegnum vinnu Björns Þórs Björnssonar grafísks hönnuðar sem hefur um árabil notað Illustrator sem sitt helsta vinnutæki.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Hvernig hönnuðir nýta sér Illustrator og hvernig forritið spilar saman við önnur Adobe-forrit.
- Þróunina í notkun Illustrator með tilkomu gervigreindar.
- Skemmtilega möguleika sem forritið býður upp á í hönnunarvinnu.
- Nýjustu útgáfu Illustrator.
- Reynslu kennara af vinnu í forritinu og nýleg verkefni sem hann vann í því.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Skilið möguleika Illustrator í hönnunar- og umbrotsvinnu.
- Kynnt sér eiginleika forritsins í nýjustu útgáfu og þá sér í lagi möguleika sem nýta sér gervigreind.
Aðrar upplýsingar:
Þátttakendur fá aðgang að Adobe Illustrator og tengdum forritum í tölvubúnaði Iðunnar fræðsluseturs. Fjarnemar þurfa hins vegar sjálfir að hafa aðgang að Illustrator.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Björn Þór Björnsson grafískur hönnuður er með sérþekkingu á Illustrator forritinu.