Hagnýt næringarfræði
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Þetta námskeið er ætlað starfsfólk í matvæla og veitingagreinum sem vilja auka þekkingu sína á næringarfræði og hvernig hægt er að nýta hana sem best í sínu starfi.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að auka grundvallar þekkingu í næringarfræði og öðlast innsýn í næringarefni máltíða.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
Farið verður í ráðleggingar um mataræði, innihald og næringargildi matvæla og aðferðir við að reikna næringargildi máltíða.
Meðal þess sem leitast verður við því að svara er:
- Hvað einkennir næringarríkar máltíðir?
- Geta næringarríkar máltíðir innihaldið unnin matvæli?
- Þurfa næringarríkar máltíðir að kosta mikið?
Að loknu námskeiði á nemandi að:
Reiknað næringargildi máltíða og gefið góðar ráðleggingar.
Aðrar upplýsingar:
Námskeiðið er eitt skipti og skiptist í tvo hluta sem hvor um sig er 1,5 klst:
Fyrri hluti er í formi fyrirlestrar og seinni hlutinn hagnýtar æfingar og umræða.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.