Niðurrif á asbesti
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Þetta námskeið er fyrir þau sem hyggjast vinna við tilkynningaskylt niðurrif á asbesti. Skilyrði fyrir því að fá leyfi til að rífa niður asbest er að búa yfir þekkingu á skaðsemi þess og nauðsynlegum mengunarvörnum.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að fræða þátttakendur um skaðsemi asbests og nauðsynlegar mengunarvarnir við niðurrif á því.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Hvað er asbest, til hvers er það notað og hvar er það helst að finna?
- Hvernig berst asbest inn í líkamann og hvaða áhrifum veldur það?
- Lög og reglur um skyldur þeirra sem taka að sér asbestvinnu
- Heilsufarsskoðanir
- Leyfi sem þarf til asbestvinnu
- Verklýsing og tilkynningar
- Greining á asbesti, mengunarmælingar og mengunarmörk
- Vinnuaðferðir og vinnuaðstæður
- Tækjabúnað, mengunarvarnir, persónuhlífar
- Pökkun og frágangur
- Merkingar og förgun
- Þrif
- Flutningur
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Vita hvað asbest er og getað greint það á verkstað og þekkja áhrif þess á mannslíkamann.
- Þekkja helstu lög og reglur sem gilda um asbestvinnu.
- Kunna til verka við rif á asbesti.
- Geta gengið frá og fargað asbesti.
Annað:
Námskeiðið veitir réttindi til vinnu við asbestverk sem valda lítilli mengun t.d. við niðurrif á þakplötum og ytri klæðningu utanhúss, við minniháttar niðurrif og viðhaldsvinna innanhúss.
Þau sem ljúka námskeiðinu eru á skrá hjá Vinnueftirlitinu svo hægt sé að meta umsóknir um asbestvinnu. Námskeiðið veitir ekki réttindi til stærri verkefna eða vinnu við eða með laust asbest þar sem hætta er á verulegri asbestmengun.
Námskeiðið er í boði allt árið. Það hefst þegar þátttakandi hefur verið skráður og er opið í átta vikur frá skráningu.
Námskeiðið er kennt á netinu, í fræðslukerfi Vinnueftirlitsins. Það tekur um það bil þrjár klukkustundir að fara í gegnum námskeiðið.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.