Almennt um sveinspróf

Iðan sinnir framkvæmd sveinsprófa í fjölmörgum iðngreinum.

Skrautmynd vegna Sveinsprófa-matreiðsla

Hvenær má ég sækja um í sveinspróf?

  • Þú þarft að hafa lokið rafrænni ferilbók
  • Þú þarft að hafa útskrifast úr skóla eða að vera á lokaönn í iðnnámi.

Hvaða gögnum þarf ég að skila með umsókn um sveinspróf?

  • Staðfestingu að rafrænni ferilbók sé lokið
  • Burtfararskírteini úr skólanum með einkunnum eða staðfestingu á því að þú munir útskrifast á yfirstandandi önn.

Ertu ekki í rafrænni ferilbók heldur á námssamningi eftir eldra kerfi?

  • Þá þarftu að senda lífeyrissjóðsyfirlit til staðfestingar á vinnutíma með umsókninni.

Sveinspróf eru haldin amk einu sinni á ári í hverri iðngrein ef næg þátttaka næst.

Sveinsprófsnefndir hafa fjórar vikur til að skila niðurstöðum sveinsprófa.

Próftaki sem óskar eftir sérúrræði í sveinsprófi þarf að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa Iðunnar.

Veldu viðeigandi grein til að fá frekari upplýsingar um sveinsprófin, tímasetningu og umsóknarfrest

Sérúrræði

Próftaki sem óskar eftir sérúrræði í sveinsprófi, s.s. vegna lesblindu, þarf að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa Iðunnar.

Iðan fræðslusetur leitast við að veita jöfn tækifæri til náms. Hér eru tilgreind þau úrræði sem boðið er upp á fyrir einstaklinga með fötlun eða aðra hömlun sem hindrar þá í námi. Skilyrði fyrir sérúrræðum í sveinsprófi eru að fyrir liggi greining viðeigandi sérfræðings.

Sérúrræðin geta falist í:

  • Lengri próftíma
  • Stærra letri á prófblöðum
  • Munnlegum prófum
  • Upplestri á prófum 

Hér er um almennan ramma að ræða en þarfir fólks eru ólíkar og því eru úrræðin að sama skapi einstaklingsmiðuð þar sem  hvert tilvik er metið sérstaklega.

Hvert skal leita?

Náms- og starfsráðgjöf Iðunnar fræðsluseturs hefur yfirumsjón með sérúrræðum og skal sá sem óskar eftir slíku fylla út umsóknareyðublað hér á vefnum. Vegna allra sérúrræða skal nemandi skila inn greiningu eða vottorði frá þar til bærum aðila til náms- og starfsráðgjafa. Það skal gert í síðasta lagi 2 vikum fyrir fyrsta próf. Mjög áríðandi er að virða þessi tímamörk.

  • Með fötlun er hér átt við andlega eða líkamlega fötlun, samkvæmt skilgreiningu í 2. gr. laga um málefni fatlaðra.
  • Með sérþörfum/hömlun er hér átt við sértæka námsörðugleika og hamlanir sem hljótast af slysum, langvinnum veikindum eða af öðrum orsökum.