Sérúrræði í sveinsprófi

Fylltu út umsóknarformið hér að neðan til að sækja um sérúrræði í sveinsprófi.

Ferli umsóknar er sem hér segir:

• Umsókn fyllt út um sérúrræði
• Náms- og starfsráðgjafi fær umsóknina og hefur samband við umsækjanda
• Umsækjandi skilar inn greiningu, hafi hann ekki gert það áður
• Náms- og starfsráðgjafi hefur samband við umsækjanda og staðfestir hvaða úrræði umsækjandi fær í prófinu

Til að hægt sé að veita sérúrræði þarf umsækjandi að skila inn greiningu eða vottorði frá þar til bærum aðila til náms- og starfsráðgjafa. Skila þarf gögnum sem allra fyrst og í síðasta lagi 10 dögum eftir að sótt er um í sveinspróf.