Hvernig geta örviðurkenningar skapað virði á vinnumarkaði?
Hvernig getum við tryggt að örviðurkenningar verði ekki aðeins góð hugmynd heldur raunverulegt verkfæri fyrir fólk og fyrirtæki á vinnumarkaði?
Þann 21. september standa Iðan, Samtök ferðaþjónustunnar og Sant Pol Hospitality & Culinary Business School að alþjóðlegum viðburði á vegum MCEU Hospitality þar sem sérfræðingar í starfsmenntun og fulltrúar atvinnulífsins ræða framtíð örviðurkenninga og næstu skref í þróun þeirra. Þetta er fjórði og síðasti vefviðburðurinn í MCEU verkefninu um örviðurkenningar.
Á dagskrá verða erindi og pallborðsumræður um það sem þarf til að auka vægi og viðurkenningu örviðurkenninga á vinnumarkaði. Rætt verður meðal annars um reynslu af tilraunaverkefnum MCEU, þarfir atvinnurekenda og hvernig skapa megi sveigjanleg námsúrræði sem nýtast fólki í starfi.
Vertu með í samtalinu um færni framtíðinnar.
- 21. september 2026
- kl 8:00-10:00
- Þáttaka á Zoom
- Einnig er hægt að taka þátt á staðnum í Barcelona