Gluggaþéttingar

Það skiptir sköpum að vanda til verka við ísetningu glugga og hurða hvort sem um er að ræða nýbyggingar eða endurnýjun í eldri húsum.
Allir sem koma að verkinu frá hönnuðum til iðnaðarmanna bera ábyrgð og þurfa að búa yfir þekkingu og færni til að tryggja vandaða framkvæmd.

SIga gluggaþéttingar

Á þessari síðu er að finna fræðsluefni og leiðbeiningar um gluggaþéttingar. Verkefnið er styrkt af mannvirkjarannsóknarsjóði og er tilgangurinn að tryggja rétta aðferðafræði frá fyrstu skrefum til verkloka.

Það er besta trygging fyrir árangursrík kaup, ísetningu og notkun glugga og hurða til framtíðar.