Þáttur 5 - Gervigreindin bætir starf iðnaðarmanna
Bergþór Ingi ræðir við Hjört Sigurðsson hjá Mynstru um hagnýta notkun gervigreindar við dagleg störf, t.d. við gerð fundargerða og verklýsinga, kostnaðaráætlana og verkefnastjórnun. En hvar liggja takmörkin og hvenær þarf fagleg dómgreind alltaf að ráða för?
„Við í byggingariðnaði erum oft að vinna með hönnunargögn, útboðsgögn, verklýsingar, þetta hjálpar okkur við að skilja, fletta upp í, greina, finna galla og gera betra,“ segir Hjörtur meðal annars um það hvernig iðnaðarmenn geta nýtt sér gervigreind til stuðnings í sínu starfi.
„Allir sem hafa komið að einhverjum framkvæmdum vita að hönnunargögnum er oft ábótavant og gervigreindin getur hjálpað okkur við það að gera þau betri.“
Fleiri fréttir