Fínir drættir leturfræðinnar í InDesign
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Námskeiðið hentar þeim sem vinna með texta í InDesign, svo sem grafískum hönnuðum, umbrotsfólki, útgefendum og öllum sem vilja kafa dýpra í smáatriði leturfræðinnar. Gott er ef þátttakendur hafi áður kynnt sér eða tekið GREP-námskeið, en ekki nauðsynlegt.
Markmið:
Fallegt umbrot veitir texta aukinn slagkraft. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist skilning á því hvernig smávægilegar ákvarðanir geta haft afgerandi áhrif á heildarútlit texta. Einnig að þátttakendur verði öruggir í að beita GREP-skipunum í InDesign til að gera sjálfvirkar lagfæringar á texta og bæta sjónræna heild.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Hvernig hækka má bandstrik sem kemur á eftir hástaf.
- Aðferðir til að breyta tilteknu stafabili í öllum texta.
- Ýmis smáatriði og sérviska sem gera texta fagurfræðilega betri.
- GREP-skipanir í InDesign, miðað við bókina Fínir drættir leturfræðinnar eftir Jost Hochuli.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Geta nýtt sér GREP-skipanir til að laga letur og ýmis mikilvæg atriði í InDesign sem hafa mikil áhrif á útlit texta.
- Þekkja helstu atriði úr bókinni Fínir drættir leturfræðinnar og geta beitt þeim í eigin verkefnum.
- Skilja hvernig skipulag og reglur í textavinnslu hafa áhrif á fagurfræðilegt heildarútlit.
- Búa til snyrtilegra, faglegra og sjónrænt fallegra umbrotsefni.
Aðrar upplýsingar:
Bókin Fínir drættir leturfræðinnar eftir Jost Hochuli er innifalin í námskeiðsverði.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.