Jólaföndur - jólatréstandur og beygjuvél
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Félaga Iðunnar og alla sem hafa áhuga á málm- og véltækni eða vilja sameina föndur og jólastemningu. Þátttakendur geta tekið með maka, vin eða barn (aldurstakmark 13 ára).
Markmið:
Að kynna þátttakendum handtökin í málm- og véltæknigreinum með skapandi og skemmtilegu föndurverkefni í anda jólanna.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Notkun plasmaskurðarvélar og undirbúning teikninga fyrir skurð
- Uppsetningu og forritun suðuróbóta
- Undirstöðuatriði við smíði beygjuvélar
- Grunnöryggi í verklegum störfum og notkun vinnslutækja
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Geta undirbúið og tekið þátt í plasmaskurðarverkefni
- Geta stillt og ræst suðuróbóta undir eftirliti kennara
- Vera búin að smíða og setja saman litla beygjuvél
- Vera búin að smíða eigin jólatréstand
- Þekkja helstu öryggisatriði vegna vinnu við stálsmíði
Aðrar upplýsingar:
Allt efni og verkfæri eru á staðnum. Þátttakendur mæta í vinnufatnaði og lokuðum skóm.
Verð: 2 fyrir 1 tilboð gildir fyrir vini, félaga eða foreldri/barn (aldurstakmar 13 ára).
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Hilmar er menntaður iðnmeistari í Stálsmíði, rennismíði og vélvirkjun