Jólaföndur – Jólaskraut unnið í tölvustýrðum rennibekk og fræsisvél
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Félaga Iðunnar og alla sem hafa áhuga á málm- og véltækni eða vilja sameina föndur og jólastemningu. Þátttakendur geta boðið maka, vin eða barni með (aldurstakmark 13 ára).
Markmið:
Að kynna þátttakendum verkferla og tækni í málm- og véltækni með skapandi og skemmtilegu föndurverkefni í anda jólanna. Þátttakendur læra að nota grunnatriði tölvustýrðra véla og sjá hvernig hugmynd verður að verki með stafrænum framleiðsluaðferðum. Einnig er í boði að vinna jólatré í manual rennibekk.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Flutning teikninga úr Inventor yfir í CAM
• Grunnatriði í G-kóða og uppsetningu á vinnsluskrám
• Uppstillingu og örugga notkun CNC rennibekks og fræsivélar
• Fagleg vinnubrögð, öryggi og gleðilegt samstarf í anda jólanna
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja til hvernig teikning er flutt úr CAD-forriti í CAM-umhverfi
• Skilja helstu þætti G-kóða og hvernig hann stýrir vélum
• Geta stillt upp og stjórnað einföldum verkefnum í CNC rennibekk og fræsivél
• Vinna af öryggi með verkfæri og búnað
• Framleiða sitt eigið jólaskraut og öðlast innsýn í tækni stafrænnar framleiðslu
Aðrar upplýsingar:
- Þátttakendur eiga afrakstur vinnu sinnar og taka með heim að námskeiði loknu 😉
• Þátttakendur mæta í vinnufatnaði og í lokuðum skóm
• Aðföng, efni og verkfæri eru innifalin í verði
• 2 fyrir 1 tilboð fyrir foreldri og barn, maka eða vini
• Lengd námskeiðs: 4 klst. kvöldnámskeið
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Hefur um árabil starfað við rennismíði, aðallega á CNC tækjum. Kennir nú rennismíði í Tækniskóla Íslands