Aðventusmiðjan - Ljós í skammdeginu
Staðsetning
Fab Lab, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Hringteig 2, 600 Akureyri
13. desember 2025 kl: 10:00 - 14:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
Fullunninn lampi
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Verð
45.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn
11.500 kr.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Komdu með unglinginn á heimilinu að föndra. Smíðaðu þinn eigin lampa með laserskurði, þrívíddarprentun og forritaðu örstýringu sem þú svo tengir við snjalltæki. Tveir fyrir einn námskeið, aldursviðmið er 13 ára.
Fyrir hverja:
Námskeiðið hentar öllum sem hafa áhuga á skapandi tækni, föndri og jólastemningu.
Markmið:
Að þátttakendur læri að hanna, setja saman og forrita ljósalampa með örstýringu.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Hönnun skráa fyrir laserskera
- Grunnatriði laserskurðar og 3D-prentunar
- Samsetningu íhluta í jólalampa (plast, rafmagn, LED-ljós, örtölvu o.fl.)
- Forritun ljósastýringar fyrir takka og snjalltæki
- Sköpunargleði og útfærslu eigin hönnunar
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Hafa innsýn í hönnun og undirbúning skráa fyrir laserskurð og 3D-prentun
- Geta tengt saman einfaldan rafbúnað og lóðað íhluti
- Geta forritað örtölvu til að stjórna LED-ljósum
- Geta framleitt og sett saman eigin lampa
Aðrar upplýsingar:
Allir þátttakendur taka lampa með heim að loknu námskeiði.
Verð
45.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn
11.500 kr.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Staðsetning
Fab Lab, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Hringteig 2, 600 Akureyri
13. desember 2025 kl: 10:00 - 14:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
Fullunninn lampi
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Kennari
Árni Björnsson
Árni Björnsson, Fab Academy leiðbeinandi.
Árni er Tölvunarfræðingur og Fab Academy leiðbeinandi.