Raki og mygla í húsum 1
Verð
40.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn
10.000 kr.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Þetta námskeið er það fyrsta af þremur þar sem fjallað er um raka í húsnæði og myglusveppi sem iðulega fylgja viðvarandi raka í byggingarefnum.
Fyrir hverja:
Þetta námskeið er fyrir byggingarmenn sem þurfa að fást við raka og myglu í húsum.
Markmið:
Markmið þess er að þátttakendur afli sér þekkingar á þessu sviði til að fást við vandamál sem stafa af völdum raka og myglu.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Raka í húsnæði og myglusveppi sem iðulega fylgja viðvarandi raka í byggingarefnum.
- Helstu galla á byggingarfræðilegum lausnum.
- Helstu mistök við byggingu húsa sem orsaka leka- og rakavandamál í húsum.og hvernig megi koma í veg fyrir þau.
- Loftun og útreikninga á rakastreymi gegnum byggingarhluta.
- Byggingarraka og greiningu rakaskemmda.
- Lífsskilyrði myglusveppa, hvar þeir þrífast, hvernig má finna þá og uppræta.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja helstu orsakir leka í húsum og hvað veldur þeim.
- Þekkja afleiðingar raka í húsnæði í formi myglusveppa.
- Geta greint helstu gerðir myglu í húsum.
- Þekkja loftun byggingarhluta.
Annað:
Þetta námskeið er þar fyrsta af þremur um raka og myglu í húsum.
Verð
40.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn
10.000 kr.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Staðsetning
Iðan fræðslusetur, Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík
22. janúar 2026 kl: 13:00 - 19:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám með möguleika á fjarnámi
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
Mæting og verkefnavinna
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Kennarar
Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir
Líffræðingur
Kristinn Alexandersson
Byggingatæknifræðingur