Raki og mygla í húsum 2
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Þetta námskeið er fyrir fólk í byggingariðnaði sem þarf að fást við raka og myglu í húsum.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að kynna helstu aðferðir við hreinsun á raka- og myglusvæðum.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Aðferðir til að meta myglu, mæla raka í byggingarefnum og fara yfir túlkun niðurstaða.
- Niðurstöður rannsókna vegna efnanotkunar og annarra aðferða við hreinsun á myglu.
- Enduruppbyggingu og verkferla við hreinsun á afmörkuðum rýmum og bent á atriði til umhugsunar við notkun byggingarefna.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja helstu aðferðir til að komast að því hvort finna megi myglu í húsnæði.
- Geta lesið úr niðurstöðum mælnga og rannsókna.
- Þekkja helstu aðferðir við hreinsun á myglu.
Annað:
Æskilegt er að þátttakendur hafi setið fyrra námskeiðið Raki og mygla í húsum 1 en er þó ekki skilyrði.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Benjamín er húsasmiður og byggingatæknifræðingur. Hann hefur breiða starfsreynslu innan byggingargeirans en hefur undanfarin áratug unnið mikið við ástandsskoðun húsnæðis, með sérhæfingu í málefnum tengdum rakaskemmdum, almennri innivist og loftgæðum. Undanfarið hefur hann færst meira í ráðgjöf og sölu á loftskiptakerfum í byggingar. Hann hefur einnig starfað við hönnun og ráðgjöf á verkfræðistofum og við verkefnaumsjón hjá verktakafyrirtækjum.