Varðveisla eldri húsa
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað fag- og áhugafólki um viðgerðir og viðhald eldri húsa.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum innsýn í helstu þætti er varða endurbætur og varðveislu eldri húsa.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Lög og reglugerðir er varða viðgerðir og viðhald á vernduðum húsum.
- Helstu tímabil og einkenni íslenskrar byggingarsögu.
- Framkvæmd viðhaldsverkefna.
- Byggingatæknilegar áskoranir varðandi viðgerðir og viðhald húsa.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja helstu laga- og reglugerðarákvæði um viðhald eldri húsa.
- Kunna skil á einkennum gamalla íslenskra húsa.
- Vita hvernig staðið er að framkvæmdum við eldri hús.
Aðrar upplýsingar:
Námskeiðið er haldið á Árbæjarsafni og verða safnhúsin þar skoðuð út frá byggingartækni og efnisnotkun.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Alma hefur sinnt kennslu á byggingarlistasögu, rannsóknum, útgáfu fræðsluefnis, ráðgjöf, viðgerðum og viðhaldi á eldri byggingum.
Snædís hefur um margra ára skeið unnið við verkefni tengd viðhaldi og viðgerðum eldri húsum.