3D prentun í iðnaði
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk frá sínu stéttarfélagi.
Fyrir hverja:
Námskeiðið hentar öllum sem vilja kynnast 3D prentun frá grunni – sérstaklega iðnaðarfólki og tæknivæddum hugmyndasmiðum sem vilja nýta möguleika þrívíddarprentunar í starfi eða eigin verkefnum.
Markmið:
Að þátttakendur öðlist traustan grunn í notkun 3D prentara, hönnun eigin hluta, vali á efni og notkun viðeigandi hugbúnaðar – með það að markmiði að geta haldið áfram að nýta tæknina eftir námskeiðið.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Uppsetningu og notkun á Bambu Lab A1 Combo og öðrum Bambu prenturum
- Hönnun í Fusion 360 og undirbúning prentunar
- Bambu Studio og OrcaSlicer hugbúnað
- Notkun efna, viðhald og eftirvinnslu
- 3D skönnun og gæðastjórnun í prentun
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Geta sett saman og rekið eigin 3D prentara
- Hannað einföld módel til prentunar
- Geta valið viðeigandi efni og stillingar
- Kunna að nýta prentun í eigin verkefnum eða vinnu
- Þekkja kosti og galla 3D prentunar
Aðrar upplýsingar:
Þátttakendur þurfa að koma með eigin fartölvu og góða tölvumús. Prentarinn (Bambu Lab A1 Combo) er innifalinn í námskeiðsgjaldi og fylgir nemanda að námskeiði loknu. Ekki er þörf á fyrri reynslu af 3D prentun. Gjafabréf og afsláttarkjör gilda ekki, félagsaðilar Iðunnar fá niðurgreitt verð.
Ókeypis fræðsla um Onshape og notkun þess https://www.idan.is/vidburdir/1171/onshape/
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk frá sínu stéttarfélagi.
Jóhannes Páll Friðriksson, eigandi 3D verk