Að fanga augnablikið – Myndefni fyrir samfélagsmiðla í veitingageiranum
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Fagfólk í matvæla- og veitingagreinum sem vilja bæta myndatökufærni sína og fanga augnablikið þegar það gefst.
Markmið:
Að þátttakendur öðlist traustan grunn og hagnýt verkfæri til að búa til betra myndefni, nýta ljós og umgjörð rétt, og vinna myndir á einfaldan hátt.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Myndefni og árangursríka notkun þess fyrir samfélagsmiðla
- Möguleika og takmarkanir iPhone snjallsíma og einfaldari myndavéla
- Gervilýsing innandyra og í lítilli birtu
- Leikmuni, bakgrunn og uppsetningu (styling)
- Kynningu á myndvinnsluforritum
- Verklegar æfingar, einstaklings- og hópaverkefni og heimaverkefni
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Geta tekið flottar myndir með iPhone snjallsíma eða einfaldri myndavél
- Búið til aðlaðandi myndefni fyrir samfélagsmiðla
- Geta nýtt lýsingu og umhverfið til að fanga stemninguna
- Unnið myndefni í iPhone snjallsíma
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Karl Pettersson, einn fremsti matarljósmyndari norðurlanda. Hann hefur áratuga reynslu af myndatöku fyrir matreiðslubækur, veitingastaði og matvælafyrirtæki