HACCP 1 – Hreinlæti og örugg meðferð Matvæla
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað öllum sem koma að meðhöndlun, framleiðslu, geymslu eða framreiðslu matvæla. Það hentar starfsfólki í eldhúsum, veitingarekstri, mötuneytum, bakaríum, matvælaframleiðslu og verslun, sem og stjórnendum og ábyrgðaraðilum á sviði matvælaöryggis.
Markmið:
Að auka þekkingu og skilning þátttakenda á helstu hættum í matvælaframleiðslu og kenna hvernig tryggja má matvælaöryggi með góðum starfsháttum og innra eftirliti samkvæmt HACCP-kerfinu.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Helstu hættur í matvælaframleiðslu, þar á meðal örverur, ofnæmisvalda og mengun
- Rétta meðferð, móttöku og geymslu matvæla, hitastig og rekjanleika
- Forvarnir gegn krossmengun og röngum vinnubrögðum
- Persónulegt hreinlæti, þrif og þrifaáætlanir
- Innra eftirlit, ábyrgðarskiptingu og hlutverk starfsfólks og stjórnenda
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Skilja grundvallaratriði HACCP og hlutverk þess í matvælaöryggi
- Þekkja helstu áhættur í meðhöndlun matvæla
- Beita góðum starfsháttum í daglegu starfi
- Draga úr líkum á matarsýkingum og krossmengun
- Taka virkan þátt í innra eftirliti á vinnustað
Elísabet Katrín er með:
B.A.-gráðu í Nútímafræði
M.A.-gráðu í Hagnýtri siðfræði með áherslu á náttúru- og umhverfissiðfræði
Diplómu í Verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun (VOGL) – Leiðtogafærni, samskiptafærni, stefnumótunarfærni og skipulagsfærni
Diplómu í Samningatækni og afburðarstjórnun (SOGA) – Gæðastjórnun, markþjálfun, afburðastjórnun og samningatækni
Hún hefur áralanga reynslu í gæðamálum, kennslu og HACCP-innleiðingu og hefur starfað sem gæðavörður, setið í HACCP-hópum og kennt fjölda námskeiða á þessu sviði.