Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja efla færni sína í InDesign og vilja vinna markvisst og faglega að framleiðslu fréttabréfa, tímarita og dagblaða.
Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum góða þekkingu á umbroti og framleiðsluferli fréttabréfa, dagblaða og tímarita í Adobe InDesign. Áhersla er lögð á góða uppsetningu, skilvirk vinnubrögð og faglegan frágang efnis fyrir prent og stafræna miðla. Þátttakendur læra að nýta helstu verkfæri forritsins á markvissan hátt og tileinka sér verklag sem notað er í faglegu umbroti þar sem miklu máli skiptir að huga að kostnaði og nýta tímann vel.
Á námskeiðinu verður farið í helstu þætti framleiðslu og umbrots í Indesign.
Kennari námskeiðsins. Sæmundur Freyr Árnason, er þrautreyndur í umbroti dagblaða, tímarita og fréttabréfa og starfaði sem framleiðslustjóri Fréttablaðsins í fjölda ára.
Prentsmiður er með áralanga reynslu af framleiðsluferli prentverka.