Pylsugerðarnámskeið

Verð 35.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 7.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Pylsugerðarnámskeið
Langar þig að læra að gera alvöru gæða pylsur frá grunni? Á þessu verklega námskeiði lærir þú allt ferlið, frá vali á kjöti og réttu fituhlutfalli yfir í fullkomna steikingu og eldun. Þú færð innsýn í fagleg vinnubrögð landsliðs kjötiðnaðar og lærir að búa til alvöru gæða pylsur sem þú getur auðveldlega gert sjálfur heima. Engin fyrri reynsla nauðsynleg, bara áhugi.

Fyrir hverja:

Námskeiðið er ætlað matreiðslumönnum, matgæðingum, heimakokkum og öllum sem hafa áhuga á góðu hráefni og vandaðri matargerð.

Markmið:

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist hagnýta þekkingu og færni til að útbúa pylsur frá grunni heima hjá sér.

Farið er yfir rétta meðhöndlun hráefnis.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Val á kjöti og rétt fituhlutfall
  • Hlutverk salts og próteina í farsgerð
  • Rétta meðhöndlun og hitastýringu hráefnis
  • Kryddun og jafnvægi bragða
  • Sprautun í garnir
  • Eldun
  • Hvernig laga má uppskriftir að eigin smekk

Áhersla er á verklega vinnu og að þátttakendur fari heim með þekkingu sem nýtist strax í eigin eldhúsi.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Sett saman eigin uppskrift
  • Fullunnið gæða pylsur heima hjá sér

Aðrar upplýsingar:

Kennari á námskeiðinu er landsliðs kjötiðnaðarmaðurinn Hermann S Björgvinsson ásamt félögum sínum í kjötiðnaðarlandsliðinu. Hermann er þrefaldur sigurvegari í Grillpylsu ársins á Kótilettunni BBQ Festival

Verð 35.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 7.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Staðsetning
Menntaskólinn í Kópavogi- Hótel- og veitingaskólinn, Digranesvegur 51, 200 Kópavogi

12. september 2026 kl: 12:00 - 16:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
Mæting og verkefnavinna
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Kennarar
Hermann Svali Björgvinsson
Hermann Svali Björgvinsson
Kjötiðnaðarmaður og fyrirliði Landsliðs kjötiðnaðarmanna

Hermann er kjötiðnaðarmaður og starfar sem slíkur hjá Síld og Fisk. Hermann er fyrirliði Landsliðs Kjötiðnaðarmanna. Hann er þrefaldur sigurvegari í "Grillpylsu ársins á Kótilettunni 2022, 2024 og 2025.

Landslið Kjötiðnaðarmanna