Ostanámskeið með Bjarka Long
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk frá sínu stéttarfélagi.
Fyrir hverja:
Fyrir alla sem elska góða osta, vín og bjór – jafnt áhugafólk sem vill læra meira, sem og þá sem starfa í veitinga- eða þjónustugeiranum og vilja dýpka skilning sinn á pörun bragða og hráefna.
Markmið:
Að auka þekkingu og skilning á ostum, uppruna þeirra og framleiðsluferli, og kenna hvernig velja má meðlæti og drykki sem lyfta bragðinu og skapa jafnvægi. Þátttakendur öðlast innsýn í listina að para saman osta, vín og bjór þannig að heildin verði meiri en summan af einstökum hlutum.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Uppruna og framleiðsluaðferðir helstu ostategunda.
- Mismunandi flokka osta – frá ferskum og mjúkum til harðra og mygluosta
- Hvernig þroskun, hitastig og geymsla hafa áhrif á bragð og áferð
- Leiðir til að para osta við vín, bjór og meðlæti
- Smakk og greining – hvernig lesa má bragðið og finna jafnvægið milli seltu, sætleika, fitu og sýru
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Hafa dýpri skilning á mismunandi ostaflokkum og sérkennum þeirra
- Geta valið rétta meðlæti, vín eða bjór með hverri ostategund
- Hafa lært hvernig smakka, meta og njóta osta á faglegan hátt
- Vera betur í stakk búinn til að miðla ostamenningu áfram – hvort sem er á heimili eða í starfi
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk frá sínu stéttarfélagi.
Bjarki Long er framreiðslumeistari og ostasérfræðingur og veit því hvað hann syngur hvað varðar osta.